Fröken feit og falleg

Keppnin „Fröken feit og falleg“ var haldin fyrir skemmstu í Ísrael og var það hinn 22 ára Khani Yirmiyahu sem bar sigur úr býtum. Þetta er í 15. sinn sem keppnin er haldin en eins og nafnið gefur til kynna er skilyrði fyrir þátttöku að keppendur séu í yfirstærð.

Yirmiyahu er léttasti sigurvegarinn frá upphafi en hún vegur 80 kg. Tuttugu konur tóku þátt í keppninni í ár sem haldin var í borginni Beersheba í suðurhluta Ísrael. Í þakkarræðunni sagði Yirmiyahu að sérhver kona ætti að elska líkama sinn, sama hversu stór hann væri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
Í gær, 12:05 Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

í fyrradag Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
í fyrradag Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Orsök fjárhagsáhyggna fundin

Teikning af heila
í fyrradag Vísindamenn hafa uppgötvað að tiltekið efni í heilanum hefur þýðingarmikil áhrif á hvort fólk geti einfaldlega lagt sársauka vegna fjárhagslegra áfalla til hliðar eða ekki. Meira »

finnur.is