Breska söngkonan Amy Winehouse neitar að greiða fyrir meðferð eiginmannsins, Blake Fielder-Civil. Hann var látinn laus úr fangelsi á miðvikudag og sendur beint í meðferð.
Heimildamaður breska blaðsins The Sun segir að Fielder-Civil hafi talið að hann þyrfti einungis að smella saman fingrum og þá myndi Winehouse rétta honum 30 þúsund pund fyrir meðferðinni. En hún hefur staðið fast á sínu - að hann greiði sjálfur fyrir meðferðina og er eiginmaðurinn afar ósáttur við ákvörðun hennar.
Haft er eftir Fielder-Civil að hann sakni Winehouse og þrái að hitta hana. „Segið Amy að ég elski hana og þrái að vera með henni. Ég get ekki beðið eftir þeirri stundu þegar þetta er búið og ég hitti Amy á ný."