Aflimaði með hjálp SMS

Breskur læknir við sjálfboðastörf í Kongó studdist við leiðbeiningar á SMS formi frá samstarfsmanni sínum í Bretlandi þegar hann þurfti að fjarlægja vinstri handlegg drengs sem hafði verið illa bitinn af flóðhesti.

Skurðlæknirinn David Nott var staddur á spítala í Rutshuru á vegum samtakanna Læknar án landamæra. Handleggur drengsins, sem er 16 ára, var illa sýktur eftir bitið og gerði Nott sér ljóst að án aðgerðarinnar myndi drengurinn láta lífið innan þriggja daga.

Nott hafði aldrei framkvæmt skurðaðgerð sem þessa áður og hafði því samband með SMS-i við vanan samstarfsmann sinn á Charing Cross spítalanum í London.

Sá sendi honum ítarlegar leiðbeiningar á SMS formi um hvernig ætti að bera sig að. Nott sagðist hafa hugsað sig vel og lengi um hvort rétt væri að skilja drenginn eftir með aðeins einn handlegg í miðri óöldinni sem ríkir í Kongó. „En á endanum hefði hann látist án skurðaðgerðarinnar svo ég dró djúpt andann og fylgdi leiðbeiningunum ítarlega.“

Nott hafði aðeins aðgang að rúmum hálfum lítra af blóði og frumstæðum skurðtækjum en aðgerðin, sem var framkvæmd í október, tókst vel og náði drengurinn fullum bata.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is