Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 11.12.2008
| 21:29
| Uppfært
12.12.2008
0:24
Tónlistargjöf á mbl.is
Dagur íslenskrar tónlistar verður tileinkaður Rúnari Júlíussyni mbl.is
Á morgun verður dagur íslenskra tónlistar og af því tilefni bjóða íslenskir tónlistarmenn og útgefendur upp á tónlistargjöf - hægt verður að sækja ríflega sjötíu lög íslenskra tónlistarmanna án endurgjalds á mbl.is. Lögin eru af plötum sem koma út á þessu ári og hafa að geyma allskyns tónlist, allt frá klassík í framúrstefnulegt rokk.
Hægt verður að sækja tónlistina frá miðnætti og verður opið fyrir niðurhal til miðnættis annað kvöld. Öll lögin eru í fullum gæðum og fullri lengd.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin










