Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 19.12.2008
| 18:19
Þórunni Valdimarsdóttur veitt viðurkenning Rithöfundasjóðs RÚV
Stjórn Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins veitti í dag Þórunni Valdimarsdóttur, sagnfræðingi og rithöfundi, viðurkenningu sjóðsins fyrir árið 2008 og framlag að upphæð 600.000 kr.
Í stjórn sjóðsins eru Eiríkur Guðmundsson og Jórunn Sigurðardóttir af hálfu Ríkisútvarpsins, Pétur Gunnarsson og Kristín Steinsdóttir af hálfu Rithöfundasambandsins og Skafti Þ. Halldórsson, formaður, skipaður af menntamálaráðherra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









