Ritchie og Khan vekja umtal

Guy Ritchie með fyrrum eiginkonu sinni Madonnu.

Guy Ritchie með fyrrum eiginkonu sinni Madonnu. Reuters

Það hefur vakið athygli í Bretlandi að undanförnu að kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie hefur hvað eftir annað sést í fylgd Jemimu Khan, sem er hvað þekktust fyrir að hafa verið vinkona Díönu prinsessu og síðan kærasta kvikmyndaleikarans Hugh Grant. 

Talsmaður Guy hefur neitað að tjá sig um málið en vinir þeirra segja þau einungis vera vini.

„Það er engin rómantík í loftinu. Þau eru hjá sama kynningarfyrirtæki og þegar þau hafa farið út saman að undanförnu þá hefur það verið vinnutengt,” segir ónefndur vinur Guy. „Þeim hefur alltaf komið vel saman enda hafa þau þekkst um árabil.” 

Guy skildi nýlega við bandarísku söngkonuna Madonnu en Jemima var eitt sinn gift pakistanska krikketleikmanninum Imran Khan, sem undanfarin ár hefur reynt hefur fyrir sér í stjórnmálum í heimalandi sínu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is