Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas. stækka

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.

Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa.

Fergie, sem heitir réttu nafni Stacey Ferguson, var í hvítum brúðarkjól frá Dolce & Gabbana og tíu brúðarmeyjar hennar voru í svörtum kjólum. Brúðarvöndurinn var svo vel skreyttur kristöllum.

Á meðal gesta í brúðkaupinu voru Mario Lopez, Stacy Keibler, Kid Rock, Slash, Kate Hudson, James Caan, Molly Sims og Vanessa Marcil.

Duhamel bað Fergie árið 2007 eftir þriggja ára samband.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Fyrrum Mossad maður ginntur

Sascha Baron Cohen
6.7.2008 Breski grínistinn Sacha Baron Cohen, betur þekktur sem Ali G og Borat, gabbaði fyrrum Mossad mann í viðtali fyrir skemmstu.  Meira »

finnur.is