Veröld/Fólk
|
Fræga fólkið - hægri dálkur
| mbl
| 11.1.2009
| 14:19
Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi
Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato.
Brancato sem er 32 ára gamall hefur barist við heróínfíkn í nokkurn tíma. Fyrir rétti sagðist hann hafa verið í miklum fráhvörfum þegar hann fór í leit að lyfjum ásamt félaga sínum. Hann sagðist ekki hafa vitað að sá væri vopnaður. Steven Armento sem er faðir fyrrrverandi ástkonu Brancato var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á lögreglumanninum.
Lillo Brancato lék Matt Bevilaqua í annarri þáttaröð um Sopranos-fjölskylduna.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin