Verðlaunuð fyrir mistök

Katy Perry kemur á hátíðina í Cannes í gærkvöldi.
Katy Perry kemur á hátíðina í Cannes í gærkvöldi. Reuters

Bandaríska söngkonan Katy Perry hlaut fyrir mistök verðlaun fyrir besta lag ársins á franskri tónlistarhátíð. Hafði Perry verðið verðlaunuð fyrir lag sitt I Kissed a Girl sem reyndist svo ekki besta lagið eftir allt saman.

Sagði kynnir NRJ tónlistarverðlaunanna, sem fram fóru í Cannes, að mistök hefðu verið gerð við talningu atkvæða og besta lagið væri þess í stað lag  Rihönnu, Disturbia.

Perry, sem þegar var búin að taka við verlaunum, fór þó ekki heim slypp og snauð því hún átti bestu plötu ársins One of the Boys.

Besta söngkonan var þá valin Britney Spears, á meðan að Pussycat Dolls hlutu verðlaun sem besta hljómsveitin og Enrique Iglesias sem besti söngvarinn

Rihanna var verðlaunuð eftir dúk og disk.
Rihanna var verðlaunuð eftir dúk og disk. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant