Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 30.1.2009
| 5:32
| Uppfært
7:08
Metaðsókn á West End
Síðasta ár var það besta í leikhúsunum á West End í London, samkvæmt The Times, sem segir leikhúsið greinilega kjörinn griðastað í umróti efnahagslífsins.
Aðsókn jókst um eitt prósent frá 2007, en nær 14 milljónir gesta sáu sýningar í leikhúsum svæðisins. Tekjur leikhúsanna hafa aldrei verið meiri, eða ríflega 480 milljónir punda.
Söngleikurinn sem aflaði mestra tekna var We Will Rock You, með tónlist hljómsveitarinnar Queen. Wicked og Billy Elliot þénuðu þó best í jólamánuðinum.
Meðal sýninga sem var hætt og tap var á, var söngleikurinn Hringadróttinssaga, og Imagine This, söngleikur um helförina, var tekinn af fjölunum eftir mánuð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









