Vilja „hvítt“ brúðkaup

stækka

mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Morgunblaðið Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is
„Við sjáum um brúðkaup fyrir útlendinga um það bil aðra hverja viku núna yfir vetrartímann því það eru margir sem vilja „hvítt brúðkaup“. Þetta er býsna spennandi og nýtt fyrir okkur,“ segir Björn Erikson, hótelstjóri á Hótel Rangá á Suðurlandi. Undanfarin misseri hefur það færst mjög í vöxt að erlend pör, aðallega frá Bretlandi, óski eftir því að hótelið sjái um undirbúning brúðkaups þeirra hér á landi.

Björn segir hótelið í samstarfi við nokkrar ferðaskrifstofur í Bretlandi um að kynna landið og hótelið sem góðan kost til brúðkaupshalds á framandi slóðum. „Fyrir tveimur árum vorum við þátttakendur í keppni á GMTV-sjónvarpsstöðinni sem er með útbreiddasta morgunþátt í Evrópu. Þar vorum við kosin annað besta brúðkaupshótelið í heimi og eftir það höfum við fengið fjölmörg brúðhjón hingað til okkar.“

Að sögn Björns gifta flest hjónin sig í Oddakirkju þar sem sóknarpresturinn, séra Guðbjörg Arnardóttir, sér um vígsluna. „Þetta er hefðbundin íslensk sveitakirkja með ríka sögu, enda bæði heimili Sæmundar fróða og fæðingarstaður Snorra Sturlusonar. En það hefur líka færst í vöxt að við undirbúum borgaralegar vígslur, sem fara þá fram á ýmsum stöðum, s.s. við Skógafoss, Seljalandsfoss og Tungufoss í Rangá.“

Eftir vígsluna efna gestirnir gjarnan til veislu á hótelinu, séu gestir í föruneyti þeirra, en að sögn Björns hafa þeir flestir verið 30 talsins. „Stundum koma brúðhjónin einsömul til okkar, en við getum tekið á móti allt að 100 manns.“ Flest skipuleggja brúðhjónin ýmsa viðburði í tengslum við brúðkaupið, fara t.d. á vélsleða, hestbak, í þyrluflug, golf eða dagsferð til Vestmannaeyja, svo eitthvað sé nefnt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is