Kryddpíurnar snúa aftur

Hinar íslensku kryddpíur. stækka

Hinar íslensku kryddpíur.

Morgunblaðið Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is

„Ég verð Geri Halliwell,“ segir Skjöldur Eyfjörð er býr sig nú ásamt fjórum öðrum þekktum dragdrottningum bæjarins undir að fara með hlutverk Kryddstúlknanna á sérstakri sýningu á Q-bar í kvöld.

Auk Skjaldar manna hópinn þeir Georg Erlingsson í hlutverki Mel B (Scary Spice), Díana Ómel Svavars sem Victoria Beckham (Posh Spice), Atli Freyr Arnarson sem Emma Bunton (Baby Spice) og Óli Hjörtur Ólafsson sem Mel C (Sporty Spice). „Þessi sami hópur gerði þetta fyrir tíu árum. Þannig að þetta er tíu ára „reunion“ hinna íslensku kryddstúlkna.“

Síðast fór landslið íslenskra dragdrottninga í hlutverk Spice Girls fyrir sjónvarpsþáttinn Eurotrash sem var þá í umsjón Jean-Paul Gaultier. „Hann var að gera eitthvert atriði hér sem við tókum þátt í. Það var t.d. að éta hrútspunga og annað. Við komum fram í þessum þætti en á sama tíma komum við reglulega fram á Ingólfskaffi.“

Eins og Buffalo-skór

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins gerði hópurinn með sér samkomulag fyrir nokkrum árum um að ef hinar raunverulegu Spice Girls myndu einhvern tímann snúa aftur, yrðu hinar íslensku að fylgja í kjölfarið. Þónokkuð er liðið síðan Spice Girls fóru saman í tónleikaferðalag um heiminn en eitthvað virðist hafa aftrað því að hinar íslensku stæðu við gefið loforð. „Þetta er algjörlega dautt en þetta er bara svo ógeðslega fyndið og hallærislegur tími. Þær eru eiginlega eins og Buffalo-skór, þóttu flottar á sínum tíma en myndu aldrei ganga í dag. Þess vegna ákváðum við núna að fara með brandarann lengra.“

Á sýningunni taka íslensku Kryddstúlkurnar þrjú lög úr lagasafni Spice Girls en auk þess verða sýnd myndbönd er hópurinn hefur gert í gegnum tíðina. Sýningin er því um klukkutíma löng í heildina.

Æfingar hafa gengið mjög vel. „Það var furðulega auðvelt að rifja þetta allt upp. Þetta hefur verið límt inn í innra minni okkar. Við mundum öll danssporin og allt. Þetta verður alvöru Spice Girls sjó þó svo að við séum ekki beint að reyna að vera þær nákvæmlega. Við setjum kannski örlítið meiri húmor í þetta.“

Kryddstúlkurnar sjö?

Kryddstúlkurnar fimm eru þekktar um allan heim en það sem færri vita er að Mel C og Emma Bunton voru ekki í fyrstu birtingarmynd sveitarinnar. Þær tóku við af öðrum stúlkum nokkru eftir að feðgarnir Lee Bewick og Jonny Leather púsluðu sveitinni saman.

Spice Girls hét fyrst Touch og liðsmenn voru Victoria Adams, Geri Halliwell, Melanie Brown, Michelle Stephenson og Lianne Morgan. Mel Chisholm tók við af Lianne mánuði eftir stofnun sveitarinnar. Í uppsagnarbréfinu er Lee Bewick skrifaði til Lianne kom fram að hún væri of gömul til þess að vera kryddpía, hún var þá 23 ára. Eftir prufuupptökur var ákveðið að Michelle Stephenson hefði ekki sama metnað og hinar stúlkurnar og var hún því rekin. Henni var þá skipt út fyrir hina 18 ára gömlu Emmu Bunton er var í námi hjá sama raddþjálfara og stúlkurnar. Hvorki Michelle eða Lianne hefur vegnað vel í tónlistinni síðan, svo vitað sé.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is