Bara 631 ár eftir

Kirkjuorgelið sem tónverkið er leikið á. stækka

Kirkjuorgelið sem tónverkið er leikið á.

Sjöundi tónninn var í dag leikinn á kirkjuorgel í þýska bænum Halberstadt í tónverki, sem byrjað var að flytja árið 2001 og áætlað er að ljúki eftir 631 ár.

Tónverkiðð er eftir bandaríska tónskáldið John Cage og heitir Orgel²/ASLSP eða Orgel í 2. veldi/Eins hægt og unnt er.  Flutningur verksins hófst árið 2001 á því að orgelleikarinn steig fótstig orgelsins og blés lofti í belginn. Fyrstu þrír tónarnir voru síðan leiknir 5. janúar 2003. Lokanótan verður slegin árið 2639 ef allt gengur að óskum.

Verkið í Halberstadt er leikið á sérsmíðað orgel þar sem nótunum er haldið niðri með lóðum og nýjum orgelpípum verður bætt við orgelið eftir þörfum.

Cage gerði ráð fyrir að verkið tæki um 20 mínútur í flutningi en þegar ákveðið var að flytja verkið í kirkjunni í Halberstam fór fram mikil umræða um það í Þýskalandi hvernig túlka bæri fyrirmælin: Eins hægt og unnt er. Sumir töldu að það gæti þýtt frá degi til hins óendanlega. Á endanum tóku tónlistarsérfræðingar og orgelsmiðurinn þá ákvörðun að flytja verkið á 639 árum til að minnast þess að svonefnt Blockwerk orgel var smíðað í Halberstam árið 1361.

„Bakgrunnurinn er heimspekilegur," sagði Georg Bandarau, kaupsýslumaður sem leggur lið stofnuninni sem skipulagði tónleikana löngu. „Á þessum erilsömu tímum er gott að finna kyrrðina í hægðinni. Eftir 639 ár munu þeir hugsanlega búa við fullkominn frið."

Flutningur verksins hófst 5. september 2001, daginn sem Cage hefði orðið 89 ára en hann lést árið 1989.  Cage fæddist í Los Angeles árið 1912 og hafði mikil áhrif, bæði sem tónlistarmaður og hugsuður. Hann samdi Organ2/ASLSP fyrir píanó árið 1985 en endurútsetti það fyrir orgel tveimur árum síðar. Af öðrum verkum Cages má nefna 4'33 en þegar það verk er leikið er alger þögn í 4 mínútur og 33 sekúndur. Nokkrar af þekktustu hljómsveitum heims hafa flutt það verk.

Vefur um tónleikana

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
Í gær, 12:05 Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

í fyrradag Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
í fyrradag Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Orsök fjárhagsáhyggna fundin

Teikning af heila
í fyrradag Vísindamenn hafa uppgötvað að tiltekið efni í heilanum hefur þýðingarmikil áhrif á hvort fólk geti einfaldlega lagt sársauka vegna fjárhagslegra áfalla til hliðar eða ekki. Meira »

finnur.is