Kiri finnur söngvara

Andri Björn Róbertsson stækka

Andri Björn Róbertsson mbl.is/Golli

Morgunblaðið Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is
Andri Björn Róbertsson, tvítugur söngnemi í Söngskólanum í Reykjavík hefur þegið boð frá söngkonunni Kiri Te Kanawa um að koma til Ítalíu til að stunda nám við Solti Te Kanawa Accademia di Bel Canto 2009 en það er tónlistarakademía fyrir afburðanemendur sem söngkonan hefur umsjón með. Nokkrum afburðanemendum á söng- og tónlistarsviðinu hvaðanæva úr heiminum er boðið að nema endurgjaldslaust við skólann.Andri Björn vakti athygli Kiri Te Kanawa þegar hún hélt námskeið á vegum Söngskólans í Reykjavík í nóvember síðastliðnum fyrir nemendur skólans og aðra söngnemendur, söngkennara og söngvara sem þess óskuðu. Þar söng Andri Björn sig greinilega inn í hjarta hennar. Í desember sendi hún honum síðan boð um skólavist við tónlistarakademíuna.

„Námskeiðið sem hún hélt í Tónlistarskólanum var mjög gott og ég hafði mikið gagn af því, eins og aðrir sem þar voru, enda er Kiri Te Kanawa mikill reynslubolti,“ segir Andri Björn. „Boð hennar til mín um að koma til Ítalíu kom skemmtilega á óvart og gladdi mig mjög. Fyrst og fremst er þetta mikill heiður.“

Andri Björn hefur stundað söng- og tónlistarnám frá barnsaldri. Hann var fimm ára þegar hann byrjaði að syngja í kórum og fór í söngtíma til Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur þegar hann var tíu ára gamall. Með árunum óx söngáhuginn jafnt og þétt og hann segist hafa stefnt að því frá fjórtán ára aldri að verða óperusöngvari. „Óperan er sérstaklega áhugavert og skemmtilegt listform,“ segir þessi ungi söngvari sem segir Bryn Terfel vera eftirlætissöngvara sinn.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is