Milljarðamærin snýr aftur

Leikritið „Milljarðamærin snýr aftur“ eftir svissneska leikskáldið Friederich Dürrenmatt, verður frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins á föstudag. Í leikritinu segir af græðgi, ást og hatri. Sagan gæti hæglega verið sprottin úr íslenskum samtíma en verkið er skrifað fyrir meira en hálfri öld.

Leikstjórn er í höndum Kjartans Ragnarssonar en nokkuð er um liðið frá því að hann leikstýrði síðast hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Margar af þeim leiksýningum sem hann hefur tekið þátt í að skapa hafa orðið eftirlæti áhorfenda og gengið fyrir fullu húsi í langan tíma.

Der besuch der alten Dame
Þetta magnaða verk Friedrich Dürrenmatts var frumflutt árið 1956 og er löngu orðið sígilt. Það er reglulega sett upp víða um heim og hefur verið uppspretta dansverka, söngleikja og ópera enda sagan einkar mögnuð og krassandi. LR sýndi leikritið árið 1965, þá undir titlinum Sú gamla kemur í heimsókn.

Leikritið gerist í smábæ sem muna má fífil sinn fegurri. Þar fyllast fátækir íbúarnir mikilli eftirvæntingu þegar Milljarðamærin snýr aftur. Hún hafði löngu áður hrökklast burt úr bænum með smán en nú eru auðæfi hennar gríðarleg og bæjarbúar hugsa sér gott til glóðarinnar. Hún lofar þeim milljörðum að uppfylltu einu skilyrði að þeir veiti henni réttlæti, en það felur í sér blóðuga fórn. Í fyrstu er tilboðið dæmt siðlaust en samt sem áður heilla peningarnir. Íbúarnir fara smám saman að eyða og spenna líkt og þeir eigi von á batnandi fjárhag, því það þarf bara einn að taka af skarið. Er siðferðið falt fyrir peninga? Og getum við elskað og hatað á sama tíma?

Það eru þau Jóhann Sigurðarson og Sigrún Edda Björnsdóttir sem leika aðalhlutverkin og Hilmir Snær Guðnason verður í hlutverki allra þriggja fyrrverandi eiginmanna Milljarðamærinnar. Alls taka um tuttugu manns þátt í sýningunni, leikarar og tónlistarmenn. Gísli Rúnar Jónsson þýddi verkið en leikmyndahöfundur er Gretar Reynisson. Filippía Elísdóttir er búningahönnuður og Frank Hall höfundur tónlistar. Um lýsingu sér Björn Bergsteinn Guðmundsson en sýningarstjórn er í höndum Ingibjargar E. Bjarnadóttur.

Vefur Borgarleikhússins

Fleiri myndir (3)

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

finnur.is