Danskt kynlífssafn gjaldþrota

Úr kynlífssafninu. stækka

Úr kynlífssafninu.

Danska kynlífssafnið Museum Erotica er gjaldþrota og  til sölu. Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn neituðu að styrkja safnið, sem hafði lent í peningavandræðum, og því fór sem fór.

„Það er einkennilegt, að enginn telur að það sé nauðsynlegt að halda úti kynlífssafni í svokölluðu frjálslyndu ríki eins og Danmörku. Einkum þar sem við höfum oft fengið heilu skólabekkina í heimsókn. Þetta er engin klámbúð heldur raunveruleg frásögn af kynlífi mannsins frá því um 10 þúsund árum fyrir Krist og til okkar daga," segir Hanne Steensgaard, safnvörður Museum Erotica, við viðskiptavef Jótlandspóstsins. Hún segist vonast til að kaupandi finnist að safninu.

Safnið var stofnað árið 1983 af Ole Ege, sem var einn af frumkvöðlum klámmyndaiðnaðarins í Danmörku. Safnið hefur verið til húsa í miðborg Kaupmannahafnar og þar hafa um 1500 safngripir verið til sýnis. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is