Bareigandi dæmdur í fangelsi fyrir hávaða

Spænskur bareigandi var í dag dæmdur í 5,5 árs fangelsi fyrir að hafa pyntað nágranna sína með því að spila háværa tónlist á barnum. Er þetta þyngsti dómur í slíku máli sem fallið hefur á Spáni en barnum var lokað árið 2006.

Samkvæmt dómsskjölum héraðsdóms í Barcelona þurftu þrír nágrannar Donegal barsins að leita sér læknishjálpar vegna þunglyndis vegna hávaða frá barnum. Á Donegal barnum var spiluð tónlist frá klukkan 9 á morgnana til klukkan þrjú á nóttunni alla daga vikunnar og voru fimm öflugir hátalarar sem sáu til þess að tónlistin hljómaði langt út fyrir barinn. Hins vegar hafði barinn ekki heimild til þess að vera með jafn öflugt hljómkerfi og notað  var á barnum og var staðnum því lokað af bæjaryfirvöldum árið 2006.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

21:37 Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
í gær Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
í gær Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
í gær Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

finnur.is