Köngulóarmaður bjargar einhverfum dreng

Hver vill ekki vera bjargað af Köngulóarmanninum? stækka

Hver vill ekki vera bjargað af Köngulóarmanninum? HO

Tælenskur slökkviliðsmaður brá sér í hlutverk ofurhetju í Bangkok í gær þegar hann klæddi sig upp sem Köngulóarmaðurinn til að ná dauðskelfdum 8 ára gömlum dreng niður af svölum.

Kennari í skóla drengsins, sem er einhverfur, kallaði eftir aðstoð þegar einn nemandinn, sem fylltist ótta á fyrsta skóladegi sínum, settist út á þaksyllu á þriðju hæð og harðneitaði að koma aftur inn, að því er segir á fréttveitu AFP.

Kennarinn reyndi sitt besta til að ná til drengsins og fá hann til að snúa við en hann sýndi enginn viðbrögð, þar til móðir hans nefndi að hann væri mikill aðdáandi ofurhetja. Slökkviliðsmaðurinn Sonchai Yoosabai brást þá skjótur við og ákvað að reyna nýstárlega leið til að leysa vandann. Hann rauk aftur á slökkviliðsstöðina og skipti í snarhasti í Köngulóarmannsbúninginn sinn.

„Ég sagði honum að Köngulóarmaðurinn væri kominn til að bjarga honum og enginn skrýmsli myndu ráðast á hann. Svo sagði ég honum að ganga rólega til mín því það væri hættulegt að hlaupa,“ segir slökkviliðsmaðurinn ráðagóði.

Drengurinn stóð strax upp og gekk í fangið á ofurhetjunni, að sögn lögreglu. Somchai segir að hann geymi bæði Köngulóarmannsbúninginn og búning japönsku sjónvarshetjunnar Ultraman í skápnum sínum á slökkvistöðinni til að lífga upp á brunaæfingar í grunnskólum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is