Jolie vill barn frá Indlandi

Brad Pitt og Angelina Jolie með tvö barna sinna. stækka

Brad Pitt og Angelina Jolie með tvö barna sinna. Reuters

Bandaríska leikkonan Angelina Jolie er sögð hafa trúað Azharuddin Mohammed,  tíu ára leikara í myndinni 'Slumdog Millionaire', fyrir því fyrir skömmu að hún og sambýlismaður hennar Brad Pitt muni brátt ættleiða barn frá Indlandi. 

Jolie er sögð hafa hrifist mjög af Azharuddin og  Rubina Ali, níu ára, er hún hitti þau á Óskarsverðlaunahátíðinni í febrúar og trúað Azharuddin fyrir þessu er hann spurði hvort hún héldi að hún ætti eftir að ættleiða barn þaðan. 

Jolie og Pitt eiga þrjú ættleidd börn frá Kambódíu, Víetnam og Eþíópíu auk þriggja annarra barna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is