Úrslitakeppnin hafin

Sigurhljómsveit Músíktilrauna 2008, Agent Fresco, hitaði upp fyrir úrslitakeppnina. stækka

Sigurhljómsveit Músíktilrauna 2008, Agent Fresco, hitaði upp fyrir úrslitakeppnina. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir

Undanfarið hafa hljómsveitir ungmenna víða að keppt sín á milli í hljómsveitakeppninni Músíktilraunum, sem er nú haldin í 27. sinn. Nú er hafin í Listasafni Íslands - Hafnarhúsinu úrslitakeppni ellefu hljómsveita af þeim 42 sem kepptu í undanúrslitum, en keppninni er útvarpað beint á Rás 2.

Sérstök dómnefnd velur þær hljómsveitir sem hreppa fyrsta, annað og þriðja sætið, en viðstaddir í Hafnarhúsinu og áheyrendur Rásar 2 um allt land kjósa Hljómsveit fólksins sem einnig verður verðlaunuð. Sigursveit Músíktilrauna 2009 fær 20 hljóðverstíma í hljóðveri Sigur Rósar, Sundlauginni, ásamt hljóðmanni, flugmiða og fleiri verðlaun, fyrir annað sæti fást 20 hljóðverstímar í Gróðurhúsinu auk fleiri verðlauna og sveitin sem hreppir þriðja sætið fær ZOOM H4 upptökutæki frá Tónastöðinni meðal annars. Hljómsveit fólksins fær að launum upptökuhelgi í Island Studios, Vestmannaeyjum, ásamt hljóðmanni og gistingu og fleiri verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikarar verða líka verðlaunaðir og veitt verða sérstök verðlaun fyrir textagerð á íslensku.

Í dómnefnd Músíktilrauna 2009 eru Árni Matthíasson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Hildur Guðný Þórhallsdóttir, Kristján Kristjánsson, Margrét Erla Maack og Ragnheiður Eiríksdóttir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is