Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 18.4.2009
| 23:21
| Uppfært
19.4.2009
0:14
Kristín sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna
Kristín Þóra Jóhannsdóttir úr Fjölbrautarskóla Vesturlands sigraði í kvöld í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í íþróttahöllinni á Akureyri. Halldór Smárason og Daði Már Guðmundsson úr Menntaskólanum á Ísafirði urðu í öðru sæti og Daníel Haukur Arnarsson úr Fjölbrautarskóla Suðurlands varð þriðji.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









