Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 2.5.2009
| 9:34
| Uppfært
10:15
Tuddinn Tyra
Tyra Banks. Reuters
Það veður enginn yfir Tyru Banks, fyrrverandi ofurfyrirsætuna sem nú drottnar yfir örlögum fúsra lærimeyja í þáttunum mögnuðu America's Next Top Model.
Manntötur eitt, sem hafði gerst æði ágengur við frúna, hefur nú verið dæmdur fyrir að ofsækja hana af dómstóli í Manhattan. Maðurinn, Brady Green, sagðist aðeins saklaus en vissulega áfjáður aðdáandi, en allt kom fyrir ekki.
Green hefur nú verið gert að gangast undir sálfræðirannsókn en Banks hefur hert öryggisgæsluna í kringum sjálfa sig til muna. Hvæssss!
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









