Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 8.5.2009
| 14:40
Carreras dregur sig í hlé
José Carreras. mbl.is
Carreras, sem er 62 ára, varð heimsþekktur sem einn af tenórunum þremur þegar hann fór að koma fram ásamt Plácido Domingo, landa sínum og Ítalanum Luciano Pavarotti. Hann segir nú í viðtali við breska blaðið The Times, að hann muni hér eftir láta sér nægja að koma fram á tónleikum.
„Ef efnisskráin passar við mitt söngsvið er það í lagi. En óperuferli mínum er lokið."
Carreras fékk hvítblæði árið 1988 en læknaðist. Tveimur árum síðar kom hann fyrst fram með Domingo og Pavarotti í Róm þegar heimsmeistaramótið í knattspyrnu var sett. Þeir komu síðan nokkrum sinnum fram saman til ársins 2003.
Carreras hélt tónleika hér á landi árið 2004 og söng m.a. með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









