Húsfyllir í Húsavíkurkirkju

Húsavíkurkirkja var þétt setin á fyrri tónleikunum og tónleikagestir hæstánægðir með það sem fyrir augu ... stækka

Húsavíkurkirkja var þétt setin á fyrri tónleikunum og tónleikagestir hæstánægðir með það sem fyrir augu og eyru bar. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Hann var þétt setinn bekkurinn í Húsavíkurkirkju í kvöld þegar Gospelkór Húsavíkur hélt sína árlegu vortónleika. Tvennir tónleikar voru haldnir í kvöld og standa þeir síðari nú yfir í kirkjunni.

Að venju var mikið lagt í tónleikana, efnisskráin fjölbreytt og kórinn með hljómsveit sér til fulltingis.

Þær Elísabet Anna Helgadóttir og Hólmfríður Agnes Grímsdóttir sungu einsöng með kórnum og eins og áður kom gestasöngvari fram með kórnum. Í ár var það enginn annar en sálarsöngvarinn Stefán Hilmarsson.

Húsavíkurkirkja var þétt setin á fyrri tónleikunum og tónleikagestir hæstánægðir með það sem fyrir augu og eyru bar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is