„Jade elskaði athyglina"

Jade Goody með indversku leikkonunni Shilpa Shetty sem hún lenti í útistöðum við í breskum ... stækka

Jade Goody með indversku leikkonunni Shilpa Shetty sem hún lenti í útistöðum við í breskum raunveruleikaþætti í sjónvarpi. Reuters

Max Clifford, fyrrum fjölmiðlafulltrúi bresku sjónvarpsstjörnunnar Jade Goody, segir hana hafa verið hæfileikalausa og að hún hafi gert sé grein fyrir því. Þá segir hann að mjög hafi færst í vöxt í Bretlandi á undanförnum áratug að fólki hafi skotið upp á stjörnuhimininn án þess að það væri gætt neinum sérstökum hæfileikum. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.

Clifford segir að þegar hann hafi verið að alast upp hafi fólk þurft að hafa eitthvað sérstakt fram að færa til að öðlast frægð. Nú þurfi fólk hins vegar ekki á neinum sérstökum hæfileikum að halda til að öðlast auð og frægð og Jade hafi verið dæmi um það.

„Jade var engum sérstökum hæfileikum gædd. Hún hefði sjálf orðið fyrst til að viðurkenna það. Hún var bara hún sjálf,” segir hann en Jade lést úr krabbameini fyrr á þessu ári.  

Þá segir Clifford að frægð geti orðið að fíkn sem sé jafn hættuleg og áfengis og kókaínsfíkn og að Jade hafi elskað alla athygina sem veikindi hennar vöktu.

Það vakti hörð viðbrögð í síðasta mánuði er sjónvarpsmaðurinn Sir Michael Parkinson sagði að Goody hefði verið tákngervingur alls þess sem ekki í ólagi í Bretlandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is