Kate Winslet höfðar skaðabótamál

Kate Winslet. stækka

Kate Winslet. Reuters

Breska leikkonan Kate Winslet hefur höfðað mál á hendur breska dagblaðinu Daily Mail, en blaðið birti grein þar sem því er haldið fram að Winslet hafi logið til um þá líkamsrækt sem hún verði að stunda til að halda sér í formi. Winslet krefst 150.000 punda í skaðabætur.

Fram kemur í dómsskjölum að Winslet, sem er 33 ára, bæði skammist og sé miður sín vegna greinarinnar. Hún höfðaði málið fyrir dómstólum í London.

Winslet heldur því fram að mannorð hennar hafi beðið hnekki. Hún fer einnig fram á að bannað verði að endurbirta greinina.

Fram kemur að dagblaðið hafi ekki samþykkt að banna endurbirtingu.

Fyrirsögn greinarinnar er „Ætti Kate Winslet að fá Óskarsverðlaun fyrir að vera mest pirrandi leikkonan?“ Því er haldið fram að leikkonan hafi dregið mjög úr því hversu mikla líkamsrækt hún verði að stunda til að halda sér í formi.

Í greininni er sett spurningarmerki við ummæli sem Winslet lét falla í viðtali við tískublaðið Elle. Þar segir: „Ég fer ekki í ræktina því ég hef ekki tíma til þess, en ég stunda Pilates-æfingar heima hjá mér af DVD-diskum í 20 mínútur eða meira á hverjum degi.“

Winslet er sérstaklega ósátt við hvað greinin er illkvittin og særandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is