Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 8.5.2009
| 11:21
Máli Polanski vísað frá
Póski leikstjórinn Roman Polanski Reuters
Lögfræðingar hans segja að frávísuninni verði áfrýjað enda geti Polanski ekki komið til Bandaríkjanna án þess að eiga á hættu að verða handtekinn við komuna þangað.
Þeir hafa haldið því fram í málarekstri sínum að upphafleg meðferð málsins hafi verið gölluð þar sem saksóknari í málinu hafi haft óeðlileg áhrif á dómara þess. Espinoza staðfesti með úrskurði í febrúar að ekki hafi verið staðið eðlilega að málum og veitti Polanski þá frest til 7. maí til að mæta fyrir rétt.Polanski er sakaður um að hafa haft kynmök við stúlku sem þá var þrettán ára. Hann játaði verknaðinn á sínum tíma gegn samningi við saksóknara en flúði land þar sem hann var þess fullviss að dómari myndi dæma hann til fangelsisvistar þvert á samkomulagið.
Konan, sem um ræðir, hefur lýst því yfir að hún hafi fyrirgefið Polanski og telji að hann hafi þegar tekið út næga refsingu með útlegð sinni frá Bandaríkjunum.
Polanski lifði af helför nasista gegn gyðingum í Póllandi og missti barnshafandi eiginkonu sína Sharon Tate árið 1969 er liðsmenn Charles Manson myrtu hana og vini hennar á heimili. Hann hefur búið í Frakklandi frá því hann yfirgaf Bandaríkin hjónanna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









