Ný mynd um ástkonu og launson Mussolinis
Ítalska myndin Vincere, sem frumsýnd verður á kvikmyndahátíðinni í Cannes síðar í mánuðinum beinir sjónum sínum að leynilegu ástarlífi ítalska einræðisherrans Benito Mussolinis og launsyni hans.
„Hann var ofbeldisfullur, útsmoginn, og miskunnarlaus maður , jafnvel gagnvart konunni sem hann elskaði og sínum eigin syni,“ segir Marco Bellocchio, leikstjóri myndarinnar, sem greinir frá því hvernig Mussolini gerði allt til að halda ástarsambandi sínu og syninum leyndu svo það spillti ekki valdabrölti hans.
„Sú mynd sem ég dreg upp af Mussolini á ekkert skylt með þeirri ímynd sem stundum er dregin upp af honum sem umhyggjusömum landsföður sem aðeins hafi gert þau einu mistök að mynda bandalag með Hitler,“ segir Bellocchio.
Árið 1914 var Mussolini 31 árs, meðlimur í Sósíalistaflokknum og ritstjóri dagblaðsins Avanti. Hann hafði þá þegar verið í sambúð með Rachele Guidi í tvö ár, en hún varð síðar eiginkona hans.
Það kom þó ekki í veg fyrir að Mussolini stofnaði til fjölda ástarsambanda. Ein ástkvenna hans var hin sjálfstæða Ida Irene Dasler, sem var þremur árum eldri en hann og rak sína eigin hárgreiðslustofu.
Dasler stóð við bakið á Mussolini þegar Sósíalistaflokkurinn rak hann úr flokknum fyrir að styðja aðild Ítala að annarri heimsstyrjöldinni. Hún seldi einnig hárgreiðslustofuna sína til þess að Mussolini hefði fjárhagslegt bolmagn til þess að stofna sitt eigið dagblað, Il Popolo d'Italia. Sumir sagnfræðingar halda því fram að Mussolini og Dasler hafi gift sig árið 1914, en það hefur ekki verið staðfest.
Dasler var ólétt í sjöunda mánuði þegar Mussolini hélt á vígvöllinn í ágúst 1915 og fæddi son þeirra, Benito Albino, 11. nóvember það sama ár. Hún sendi barnsföður sínum bréf með tíðindunum, en fékk aldrei neitt svar.
Þegar hún frétti af því að hann hefði verið lagður inn á spítala hélt hún til fundar við hann ásamt syni þeirra. Daginn áður en hún kom á fund hans kvæntist Mussolini Rachele Guigi á spítalanum.
Mussolini lofaði Dasler að hann myndi gangast við faðerninu og stóð við það. Hann greiddi meðlag með syninum.
Fljótlega snéri Mussolini hins vegar baki við fyrrum ástkonu sína. Hætti að svara bréfum hennar og lét lögregluna fylgjast með hverju fótmáli hennar. Hún kvartaði formlega undan framkomu hans í hennar garð.
Þegar Mussolini komst til æðstu valda í nóvember 1922 jók hann eftirlitið með Dasler. Árið 1926, þegar Mussolini var ótvírætt orðinn einræðisherra sem hafði múlbundið fjölmiðla landsins og stjórnarandstöðuna, lét hann handtaka Dasler og koma henni fyrir á geðsjúkrahúsi.
Sonur þeirra, Benito Albino, var tekinn frá móður sinni og settur í fóstur. Dasler var eftir þetta færð milli geðsjúkrastofnana, mátti ekki skrifa neinum né hitta fólk utan sjúkrahússins. Hún lést árið 1937, þá 57 ára gömul.
Sonur hennar var aðeins 11 ára þegar hann var settur í fóstur. Hann stundaði nám í heimavistarskóla þar til hann varð 18 ára gamalla og gekk þá í sjóherinn. Þó Mussolini hefði engin samskipti við son sinn fylgdist hann gaumgæfilega með honum.
Benito Albimo hélt góðum tengslum við móðurfólk sitt og olli það Mussolini mikilli gremju. Hann lét því fyrirvaralaust senda son sinn til Asíu árið 1934. Ári síðar þegar Benito Albino snéri heim til Ítalíu var hann lagður inn á spítala og síðar fluttur á geðsjúkrahús árið 1936. Þar lést hann sex árum síðar aðeins 26 ára gamall.
Mæðginin, Benito Albino og Ida Irene Dasler, eru grafin í ómerktum gröfum.










