Sutherland ákærður fyrir líkamsárás
Bandaríski leikarinn Kiefer Sutherland hefur verið ákærður fyrir líkamsárás, en hann er sakaður um að hafa skallað tískuhönnuð á næturklúbbi á Manhattan í New York.
Sutherland, sem er 42 ára, gaf sig fram við lögreglu í gær eftir að hann var sakaður um að hafa skallað Jack McCollough á SubMercer aðfararnótt þriðjudags.
Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem leyniþjónustumaðurinn Jack Bauer í spennuþáttunum 24. Hann mun mæta fyrir dómara í júní og svara ásökunum um minniháttar líkamsárás.
Sutherland er nú þegar á skilorði vegna dóms sem hann hlaut fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis.
Árásin er sögð hafa átt sér stað í samkvæmi Metropolitan Museum of Art. Þar voru margar frægar stjörnur á borð við Madonnu, Justin Timberlake, Kate Moss og Victoriu Beckham.
McCollough, sem vinnur fyrir Proenza Schouler tískuhúsið, segist hafa lent í rifrildi við Sutherland sem hafi síðan skallað sig.
Fram kemur í bandarískum fjölmiðlum að Sutherland hafi lenti í orðaskaki við McCollough eftir að tískuhönnuðurinn rakst utan í leikkonuna Brooke Shields.









