Ferðalög og frístundir í Laugardalshöll
Sýningin Ferðalög og frístundir stendur nú sem hæst í Laugardalshöll. Á sýningunni sameinast á einum stað allt sem viðkemur ferðalögum og frístundum, innanlands og utan. Samhliða Ferðalögum og frístundum verður haldin sýningin Golf 2009, þar sem hægt verður að nálgast á einum stað allt það nýjasta sem snertir golfíþróttina.
Sýningin ferðalög og frístundir hófst í gær. Kjarninn í ferðasýningunni er Ferðatorgið, þar sem ferðamálasamtök og markaðsstofur landshlutanna kynna ferðaþjónustu á sínu svæði. Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni ferðaþjónustu og frístundamöguleika og vekja athygli á þeim öflugu fyrirtækjum og stofnunum sem koma að ferða-, frístunda- og afþreyingarmálum.
Meðal dagskrárliða í dag verður keppni um titilinn Matreiðslumeistari Norðurlanda á Matartorginu. Keppnin er haldin fyrir opnum tjöldum og geta gestir því fylgst með bestu kokkum Norðurlanda etja kappi fram eftir degi. Jafnframt verður tilkynnt um úrslit í keppnunum Matreiðslumeistari ársins og Vínþjónn ársins, sem fram fóru í gær.
Fjölbreytt skemmtiatriði verða á sviði sýningarinnar og má þar nefna skógapúka, syngjandi leiðsögumann, trúð, bluesband og söngleikjatónlist.
Sýningin Golf 2009 er haldin samhliða Ferðalögum og frístundum en þar má finna allt sem viðkemur golfíþróttinni. Golfklúbbar kynna starfsemi sína, gestir geta spreytt sig á púttflöt og æfingasvæði auk þess sem sérstakt svæði er fyrir krakkagolf. Golfsamband Íslands stendur fyrir kynningu á golf.is og golfreglum fyrir kylfinga í dag og á morgun.
Nánari upplýsingar er að finna á vefnum ferdalogogfristundir.is









