Matreiðslumeistarar krýndir

Frá keppni um Matreiðslumann ársins sem fram fór á sýningunni í gær. stækka

Frá keppni um Matreiðslumann ársins sem fram fór á sýningunni í gær.

Matreiðslumeistarar ársins voru krýndir á sýningunni Ferðalög og frístundir, sem nú stendur í Laugardalshöll. Matreiðslumeistari ársins 2009 er Jóhannes Steinn Jóhannesson hjá veitingastaðnum VOX en titilinn matreiðslumeistari Norðurlanda 2009 hlaut Alexander Berg frá Noregi. Vínþjónn ársins var valin Alba E. Hough, vínþjónn á Vox.

Fjöldi gesta hefur lagt leið sína í Laugardalshöllina í gær og í dag til að kynna sér það nýjasta sem ferðaþjónustan hefur upp á að bjóða.

Á Matartorgi sýningarinnar hefur farið fram keppni um matreiðslumann ársins, matreiðslumann Norðurlanda og vínþjón ársins. Úrslit í keppnunum voru tilkynnt nú síðdegis.

Matreiðslumeistari ársins 2009 er Jóhannes Steinn Jóhannesson hjá veitingastaðnum VOX. Í öðru sæti var Þórarinn Eggertsson hjá Orange og í þriðja sæti var Rúnar Þór Larsen hjá veitingastaðnum Bryggargatan í Svíþjóð.

Titilinn Matreiðslumeistari Norðurlanda 2009 hlaut Alexander Berg frá Noregi. Í öðru sæti var íslenski keppandinn, Þráinn Freyr Vigfússon, og í því þriðja var Allan Poulsen frá Danmörku.

Vínþjónn ársins var valin Alba E. Hough, vínþjónn á Vox, og í öðru sæti var Guðlaugur Siggi Hannesson, vínþjónn í Perlunni.

Á morgun fer fram matreiðslukeppnin Íslenskt eldhús á Matartorginu, en þá etja keppendur frá Vestfjörðum, Austurlandi, Norðurlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðurnesjum kappi. Keppnin fer þannig fram að landshlutarnir senda keppendur og dómara til þátttöku og notar hver keppandi hráefni sem tengist viðkomandi landshluta. Markmið keppninnar er að kynna það besta sem hver landshluti hefur upp á að bjóða í mat og vekja athygli á því sem Ísland hefur upp á að bjóða sem matarkista.

Sýningin Golf 2009 er haldin samhliða Ferðalögum og frístundum en þar má finna allt sem viðkemur golfíþróttinni. Golfklúbbar kynna starfsemi sína, gestir geta spreytt sig á púttflöt og æfingasvæði auk þess sem sérstakt svæði er fyrir krakkagolf.

Nánar um sýninguna

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is