Þarf hvorki að sofa né borða
Blur-gítarleikarinn Graham Coxon er svo djúpt sokkinn í vinnuna þegar hann tekur upp nýtt efni að hann hefur staðið sig að því að gleyma að borða og sofa svo dögum skiptir.
Coxon sem kom að gerð fyrstu sóló-plötu Pete Doherty viðurkenndi þó í viðtali á dögunum að Doherty hefði hjálpað honum að stunda heilbrigt líferni meðan á þeim upptökum stóð. Ja, hérna. Á dauða okkar áttum við von fremur en að Doherty hefði góð áhrif á heilsu fólks. Það er kannski einum of mikið af því góða.
„Ég get verið án matar og svefns svo vikum skiptir þegar ég er í hljóðveri en þegar ég vann með Doherty og upptökustjóranum Stephen Street að Grace/Wasteland var annar háttur á. Stephen hélt öllu í röð og reglu svo að þegar Pete mætti varð engin truflun á ferlinu.“ Coxon sagði í sama viðtali að hann væri viss um að Doherty ætti mikið inni og að hans besta verk væri enn óunnið. „Hann er mjög rómantískur persónuleiki og ótrúlega hæfileikaríkur. Hann hefur margt að bjóða og er þar fyrir utan mjög skemmtilegur félagsskapur.“









