Tyrkland sigrar í Evróvisjón samkvæmt Google
Eins og staðan er akkúrat núna er það hin þokkafulla Hadise frá Tyrklandi sem yrði sigurvegari en tiltölulega fast á hæla henni kemur Norðmaðurinn Alexander Rybak sem hefur auk vefleitar alla helstu veðbankana og fræðinga á bak við sig. Grikkinn olíuborni, Sakis, er svo í þriðja sæti.
Tólið þarf þó að taka með drjúgum fyrirvara samkvæmt Evróvisjóngreininingardeild Morgunblaðsins. Athuga ber að helmingsvægi stiga í úrslitunum liggur hjá dómnefndum og Google getur eðlilega ekki spáð um slíkt, eins og reyndar er tekið fram á síðunni. Gæti þessi góða spá fyrir Tyrkland líka mögulega stafað af því að Tyrkir séu óvenjuáhugasamir og liggi því á netinu nótt sem dag?
Samkvæmt spánni er Ísland líka í 35. sæti sem er auðvitað nóg til að lýsa algjöru frati á veftólið.









