Verðmætum Opruh bjargað

Oprah Wnfrey. stækka

Oprah Wnfrey. Reuters

Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey er einn þeirra íbúa í suðurhluta Kaliforníu sem þurfti að bjarga verðmætum úr húsi sínu vegna ótta við skógarelda. Oprah er að vísu stödd í Chicago þar sem þáttur hennar var tekinn upp fyrir helgi, en starfsfólk hennar og flutningamenn tæmdu húsið á mettíma.

Glæsihýsi Opruh er í Montecito en íbúum svæðisins hefur ekki verið gert skylt að yfirgefa hús sín. Hins vegar er viðbúnaðarstig hátt.

Eldarnir kviknuðu á þriðjudag og mögnuðust fljótt, enda hefur verið afar heitt í lofti og hvasst á svæðinu. Áætlað er að um 3.500 hektarar skóglendis hafi brunnið. Slökkviliðsmenn í Kaliforníu eru nú óðum að ná tökum á eldunum en yfirvöld eru þó enn uggandi og vara við að eldarnir geti blossað upp á ný, enda erfiðar veðurfarsaðstæður með miklum sviptingum í vindáttinni.

Um 4.000 slökkviliðsmenn hafa barist við eldana og þyrlur hafa verið notaðar við slökkvistarfið.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
cript>

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is