Boy George laus úr fangelsi

Boy George stækka

Boy George Reuters

Breski tónlistarmaðurinn Boy George hefur verið látinn laus úr fangelsi, ellefu mánuðum fyrr en til stóð. Hann var dæmdur  í fimmtán mánaða fangelsi í janúar  fyrir að hafa haldið norskum fylgdarpilti föngnum heima hjá sér á árinu 2007. 

Samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla var Boy George látinn laus vegna góðrar hegðunar en hann þarf að ganga með staðsetningartæki um ökklann næstu mánuði og mæta á fundi hjá skilorðsfulltrúa sínum reglulega.

Boy George, sem er 47 ára og fyrrum söngvari Culture Club, var sakaður um að hafa handjárnað 29 ára gamlan Norðmann, Audun Carlsen, og barið hann með járnkeðju þegar hann reyndi að flýja íbúð popparans í kjölfar nektarmyndartöku.

  George, sem heitir réttu nafni George O'Dowd, játaði að hafa handjárnað Carlsen í apríl árið 2007. Hann sagði hins vegar að hann hefði gripið til þessa ráðs eftir að grunsemdir vöknuðu hjá honum að Norðmaðurinn hafi átt við tölvuna hans og náð þaðan ljósmyndum.

Carlsen segir þetta vera tilbúning. Hann hafi verið færður í handjárn vegna þess að George hafi viljað refsa honum fyrir að vilja ekki stunda með honum kynmök.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
cript>

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is