DiCaprio og Winslet styrkja Millvinu
Titanic sökk í jómfrúarferð sinni árið 1912.
Kvikmyndaleikararnir Leonardo DiCaprio og Kate Winslet hafa veitt Millvinu Dean, sem er ein eftir á lífi af þeim sem voru um borð í Titanic er það sökk árið 1912, fjárstyrk, Er styrkurinn veittur til að hún geti áfram dvalist á dvalarheimili þar sem hún hefur búið undanfarin ár.
Millvina er 98 ára gömul og ákváðu leikararnir að aðstoða hana eftir að ljósmyndarinn Don Mullan leitaði til þeirra. Hann hafði áður reynt að afla fjár fyrir Dean með því að selja ljósmyndir af höndum hennar. DiCaprio og Winslet léku aðalhlutverkin í stórmyndinni Titanic frá árinu 1997 sem byggir á hinni afdrifaríku jómfrúarferð skipsins.
„Gömul kona berst enn fyrir lífi sínu, í þetta sinn reynir hún að komast hjá því að drukkna undan kostnaði við dvalarheimilisvist sína. Þetta var bara ekki rétt ekki síst í ljósi þess hversu mikilla fjármuna frásögnin af Titanic hefur aflað á undanförnum árum,” segir hann.
„Þetta var fólk sem gat, og mér fannst að ætti að hjálpa henni.. Að bregast Millvinu Dean, síðasta áþreifanlega tengiliðnum við Titanic, hefði gert lítið ur þeirri samúð sem heimurinn hefur sýnt vegna harmleiksins.” Millvina var níu vikna gömul er hún sigldi með skipinu frá Southampton á Englandi, áleiðis til Bandaríkjanna









