Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 11.5.2009
| 23:06
Jóhanna Guðrún söng í Abba-samkvæmi
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng í kvöld lagið The Winner Takes It All í samkvæmi, sem Svíar héldu í Moskvu til að hylla sænsku hljómsveitina Abba, en 35 ár eru nú liðin frá því Abba vann Eurovision söngvakeppnina með laginu Waterloo.
Christer Björkman, sem m.a. hefur tekið þátt í Eurovision fyrir hönd Svía, var kynnir og söng einnig Abba-lagið Thank You For The Music. Meðal annarra sem komu fram voru Jade Ewen, fulltrúi Breta í Moskvu, og Malena Ernman, fulltrúi Svía.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









