Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 11.5.2009
| 5:30
| Uppfært
7:00
Kjaftað frá kyni
Tónlistarmaðurinn Seal staðfesti í spjallþætti hjá Oprah Winfrey á föstudaginn að barnið sem kona hans, fyrirsætan Heidi Klum, gengur með sé stúlka.
Klum sagði í viðtali við Ellen DeGeneres nýlega að þau vissu ekki hvaða kyn barnið væri en Seal útskýrði hjá Winfrey að Klum gæti ekki þagað yfir leyndarmáli og hefði gefið honum leyfi til að segja almenningi frá kyni barnsins.
Parið tilkynnti að þau ættu von á sínu þriðja barni í seinasta mánuði. Saman eiga þau tvo syni en fyrir á Klum eina stúlku með Flavio Briatore.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin










