Kjörinn heiðurslistamaður

Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og rektor Listaháskóla Íslands. stækka

Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og rektor Listaháskóla Íslands. Kristinn Ingvarsson

Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld hefur verið kjörinn heiðurslistamaður Kópavogsbæjar fyrir árið 2009, segir í fréttatilkynningu.

 „Hjálmar hefur verið atkvæðamikill sem tónskáld hér á landi allt frá því hann flutti heim að loknu námi árið 1980. Verk hans spanna allt frá einleiksverkum til stærri sinfónískra verka og frá einsöngslögum til söngleikja og ópera,“ sagði Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningarráðs Kópavogs, þegar hún tilkynnti um kjörið.

 „Hann hefur samið tónlist fyrir fjölda leiksýninga og fyrir kvikmyndir, auk þess sem hann hefur unnið með fjölmörgum kórum og sönghópum bæði sem tónskáld og stjórnandi.“
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is