Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 11.5.2009
| 5:30
| Uppfært
6:34
Næstbestur á Norðurlöndum
Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumaður var í 2. sæti í keppninni Matreiðslumeistari Norðurlanda 2009 sem haldin var á sýningunni Ferðalög og frístundir sem stóð yfir í Laugardalshöll um helgina. Í 1. sæti varð hinn norski Alexander Berg og í því þriðja Allan Poulsen frá Danmörku.
Jóhannes Steinn Jóhannesson hjá veitingastaðnum VOX var valinn matreiðslumeistari ársins. Í 2. sæti varð Þórarinn Eggertsson hjá Orange og í 3. sæti Rúnar Þór Larsen hjá veitingastaðnum Bryggargatan í Svíþjóð. Einnig var valinn vínþjónn ársins en titilinn hlaut Alba E. Hough, vínþjónn á Vox.
Þá fór fram matreiðslukeppnin Íslenskt eldhús þar sem matreiðslumenn frá Vestfjörðum, Austurlandi, Norðurlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðurnesjum öttu kappi. Skilyrði var að hver keppandi notaði hráefni sem tengdist hans landshluta en markmiðið var að kynna það besta sem hver landshluti hefði upp á að bjóða í mat. Sigurvegari var Ólafur Ágústsson af Austurlandi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









