Pútín kíkti í keppnishöllina

Jóhanna Guðrúm í Moskvu stækka

Jóhanna Guðrúm í Moskvu

Morgunblaðið Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is

„Helgin er búin að vera vinna, vinna og vinna,“ segir Jónatan Garðarsson fararstjóri íslenska Evróvisjónhópsins þegar blaðamaður slær á þráðinn til hans í Moskvu í gær.

„Í gærkvöldi [laugardag] fórum við í partý sem gríski flytjandinn hélt í Euroklúbbnum. Þar fluttu margir keppendur lagið sitt og m.a. Jóhanna sem var næstsíðust á svið, á undan Grikkjanum,“ segir Jónatan og bætir við að flutningur Jóhönnu hafi lukkast mjög vel. „Þau sungu eftir undirspili af diski á meðan hinir voru með svokallað „Sing On“ og hermdu eftir sjálfum sér. Ég hef fengið mjög góð viðbrögð við því að Jóhanna hafi sungið í alvörunni.“

Mikið havarí átti sér stað í keppnishöllinni á laugardaginn þegar sjálfur Pútín, forsætisráðherra Rússlands, leit þar inn. „Maður fann að það var eitthvað einkennilegt í gangi og svo kom hann. Það var mjög erfitt að sjá hann og hvað þá mynda, Pútín er ekki mjög hávaxinn og það voru örugglega um 20-30 tröllvaxnir öryggisverðir í kringum hann sem hrintu fólki frá. Evróvisjón er stórt mál hér og ríkisstjórnin setur mikinn pening í keppnina.“

Opnunarveisla í gærkvöldi

Í gær var Jónatan með öðru sjónvarpsfólki við vinnu í keppnishöllinni en um kvöldið var opnunarhátíð Evróvisjónkeppninnar og var Jónatan að búa sig undir hana um leið og hann spjallaði við blaðamann.

„Jóhanna var í viðtölum í dag og síðan var söngæfing kl. 16 en nú eru allir að gera sig klára fyrir opnunarveisluna sem borgarstjórn Moskvu og ríkisstjórn Rússlands halda í Euroklúbbnum í kvöld.

Á morgun [í dag ] byrjar dagurinn á fundum hjá okkur sjónvarpsfólkinu og svo þurfum við að vera komin í höllina um hádegi en fyrsta búningarennsli er kl. 14. Síðan er annað eins rennsli um kvöldið þegar dómnefndir horfa á.

Á eftir fer Jóhanna í Euroklúbbinn og syngur „The Winner Takes It All“ með Abba. Í ár eru 35 ár síðan Abba vann keppnina og það er hálfgerð afmælisveisla í klúbbnum annað kvöld þar sem Jóhönnu var boðið að syngja Abba-lag.“

Að sögn Jónatans er Jóhanna að fá góða athygli og samkvæmt óformlegri könnun sem á sér stað í höllinni er henni spáð öðru sæti upp úr sínum riðli. Bosníu-Hersegóvínu er spáð sigri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is