Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 11.5.2009
| 14:56
Rubina Ali hækkar í launum
Faðir indversku stúlkunnar Rubina Ali segir hana hafa fengið hærri laun fyrir að leika í auglýsingu en í Óskarsverðlaunamyndinni Slumdog Millionaire. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.
Í auglýsingunni leikur stúlkan á móti kvikmyndaleikkonunni Nicole Kidman og segir faðirinn upptökur á auglýsingunni hafa tekið þrjá daga.
Faðirinn var nýlega hreinsaður af ásökunum um að hafa gefið í skyn við blaðamenn að stúlkan væri til sölu fengist fyrir hana rétt verð .
Leikstjóri Slumdog Millionaire, Danny Boyle hefur setið undir harðri gagnrýni fyrir að greiða barnastjörnum myndarinnar, þeim Azharuddin Ismail og Rubina Ali, eins litla peninga og mögulegt var. Hann hefur hins vegar gert lítið úr slíkum ásökunum.
„Við veltum því lengi fyrir okkur hvernig best væri að hjálpa þeim. Við borguðum þeim en nú eru þeir peningar horfnir. Að lokum ákváðum við að stofna menntasjóð í þeirra nafni og um leið og þau hafa lokið skólagöngu, mun umtalsverð fjárhæð renna til þeirra. Það er hins vegar mikilvægast af öllu að nú tala þau ensku. Sá sem er enskumælandi í Mumbai getur valið úr störfum,“ sagði hann.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









