Tími Entropu liðinn
Innsetningin Entropa, sem er eftir tékkneska listamanninn David Cerny var tekin niður í anddyri húsakynna ráðherraráðs Evrópusambandsins í Brussel í dag en ráðið er æðsta valdastofnun sambandsins. Verkið hefur vakið miklar deilur en verkið er eins konar hreyfi- og hljóð-landakort sem átti að sýna hug íbúa Evrópusambandsríkjanna 27 til sambandsins.
Verkið Entropa vegur átta tonn og urðu ýmsir þjóðarleiðtogar reiðir er þeir sáu þær hugmyndir sem sýndar voru í verkinu. Einingin sem á að tákna Rúmeníu er Drakúla-þemagarður, Holland sýnt á floti, stöku íslamskir bænaturnar standa þó upp úr hafinu, líklega til að minna á deilurnar vegna minnihlutahóps múslíma í landinu.
Einingin fyrir Frakkland er eins konar skjaldarmerki með orðinu Verkfall. Með lítilli fyrirhöfn má grilla í hakakrossmynstur í einingunni fyrir Þýskaland sem er eins konar loftmynd af hraðbrautaneti. Bretland sést hins vegar hvergi, átti það að tákna að Bretar vildu ekkert vera í sambandinu. Lúxemborg er sýnd sem gullklumpur á uppboði og Svíþjóð sem flatur IKEA-pakki. Síðast en ekki síst var það Búlgaría, frumstætt salerni, sem fór fyrir brjóstið á ýmsum ráðamönnum í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu.
David Cerny tilkynnti í síðasta mánuði að hann vildi láta taka verkið niður í mótmælaskyni við fall ríkisstjórnar Mirek Topolanek nýverið. Sagði Cerny að bolsévikar og sósíalistar hafi tekið völdin í Tékklandi og var listamaðurinn afar ósáttur, að eigin sögn, með þá þróun en upphaflega átti verkið að hanga upp þar til 1. júlí er formennsku Tékka í framkvæmdastjórn ESB lyki.









