Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum. stækka

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum. AP

„Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð.

Veronica Lario, eiginkona Berlusconis, lýsti því opinberlega yfir fyrir rúmri viku að hún vildi fá skilnað frá eiginmanni sínum vegna þess að hann væri að eltast við ólögráða stúlkur. Vísaði hún sérstaklega til þess að maður hennar hefði mætt í afmælisveislu Noemi í Mílanó. 

Nokkuð hefur hallað á forsætisráðherrann í umræðunni í kjölfarið. Nú hefur tímaritið Chi, sem er í eigu Berlusconis eins og margir aðrir ítalskir fjölmiðlar, birt viðtal við Noemi þar sem m.a. er haft eftir henni: „Það er mér mikils virði að vera jómfrú," og að hún hafi ekki enn tekið stóra skrefið. Þegar það gerist vonist hún til að það verði með kærastanum Domenico, sem ekki hefur verið nefndur til sögunnar fyrr. Í blaðinu er birt mynd af kærustuparinu að kyssast. 

Fjallað er um viðtalið á fréttavef danska blaðsins Berlinske Tidende í dag og þar segir, að Noemi vilji frekar tala um innkaupaferðir og handsnyrtingu en meint ástarsamband hennar við Silvio Berlusconi. 

Faðir Noemi sagði í viðtali við sama tímarit í síðustu viku, að Berlusconi hefði komið í afmælisveislu dóttur sinnar með hálsmen, sem metið er á 1 milljón króna vegna þess að þeir Berlusconi séu gamlir vinir.

Faðirinn hafði raunar áður þverneitað fyrir að þekkja Berlusconi og hrósaði raunar Veronicu Lario fyrir að standa á sínu gagnvart eiginmanni sínum. En í viðtalinu við Chi var komið annað hljóð í strokkinn og Berlusconi var skyndilega orðinn gamall fjölskylduvinur.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Heima er besta heimildarmynd heims á Imdb.com

Sigur Rós við Snæfellsskála.
12.5.2009 Heimildarmyndin Heima, sem fjallar um hljómsveitina Sigur Rós, er besta heimildarmynd allra tíma ef marka má kvikmyndavefinn Internet Movie Database, Imdb.com. Notendur vefjarins, sem er einn allra vinsælasti kvikmyndavefur heims, geta gefið hverri mynd einkunn frá einum upp í tíu, og í flokki heimildarmynda er Heima á toppnum með meðaleinkunnina 8,7. Meira »

finnur.is