Dreymir um frægð í Hollywood

Kylie Minogue stækka

Kylie Minogue Reuters

Ástralska poppsöngkonan Kylie Minogue missir ekki svefn yfir þeirri staðreynd að hún nýtur ekki sömu vinsælda í Bandaríkjunum og hún gerir í Evrópu og Ástralíu. Hins vegar lætur hún sig oft dreyma um að vera fræg Hollywood-leikkona. Minogue sem hóf ferilinn fyrir 20 árum í áströlsku sápuóperunni Grönnum (Neighbours) viðurkennir að hún hafi ekki alltaf tekið réttar ákvarðanir á ferlinum og að sumar ákvarðanirnar hafi orðið til þess að kvikmyndaferillinn er ekki eins vel á veg kominn og hana hefði langað. Í viðtali við Reuters-fréttastofuna segir hún að hana dreymi um að hitta leikstjóra sem ráði hana í hlutverk á svipaðan hátt og Nick Cave fékk Minogue til að syngja með sér í laginu Where The Wild Roses Grow árið 1996 sem var sannarlega af öðrum toga en það sem Kylie hafði áður gert, tónlistarlega. „Cave sá mig í allt öðru ljósi, trúði á mig og treysti því að ég gæti uppfyllt óskir hans um lagið. Og það heppnaði stórkostlega,“ segir Minogue sem heldur í tónleikaferðalag um Bandaríkin síðar á þessu ári.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is