Fá fína dóma í The New York Times
Björk Guðmundsdóttir. mbl.is/Ómar
Tónleikar Bjarkar og The Dirty Projectors í Housing Works Bookstore-kaffihúsinu í SoHo fá afar fína dóma í The New York Times. Blaðamaður segir að Björk hafi verið klædd í hafbláan kjól og haldið á nýpáruðu textablaði á tónleikum sem hafi að öllum líkindum verið þeir minnstu sem Björk hafi komið fram á.
Um 300 manns voru samankomnir í kaffihúsinu á föstudaginn en upphitunaratriði kvöldsins voru tvö söngvaskáld, Kurt Wiesman frá Vermont og Ólöf Arnalds frá Íslandi.
Fram kemur í greininni að lögin hafi flest verið eftir The Dirty Projectors sem er leidd af tónlistarmanninum David Longstreth en greinilegt væri að Longstreth væri undir miklum áhrifum frá Björk eins og heyra mætti á raddbeitingu söngvarans þó að rödd Longstreths sé á margan hátt kurteisleg á meðan rödd Bjarkar er líkt og náttúruafl sem ekki verður hamið.









