Heima er besta heimildarmynd heims á Imdb.com
Sigur Rós við Snæfellsskála. mbl.is/Gunnar
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is
Heimildarmyndin Heima, sem fjallar um hljómsveitina Sigur Rós, er besta heimildarmynd allra tíma ef marka má kvikmyndavefinn Internet Movie Database, Imdb.com. Notendur vefjarins, sem er einn allra vinsælasti kvikmyndavefur heims, geta gefið hverri mynd einkunn frá einum upp í tíu, og í flokki heimildarmynda er Heima á toppnum með meðaleinkunnina 8,7.
Alls hafa rúmlega 2.400 manns gefið myndinni einkunn, en 1.360 þeirra gáfu myndinni fullt hús, eða einkunnina 10.
Slær út þekktar myndir
Þeir Sigur Rósar menn slá þar með út heimildarmyndir um tónlistarmenn á borð við Bob Dylan, Iron Maiden, U2, Tom Petty, Nirvana, The Who og Pink Floyd. Á meðal annarra þekktra heimildarmynda sem eru neðar á listanum má nefna American Zeitgeist, The King of Kong, Sicko og Bowling for Columbine. Í öðru sæti listans er franska heimildarmyndin Night and Fog sem gerð var árið 1955 og fjallar um útrýmingarbúðir nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Myndin er ekki langt frá Heima því hún hefur meðaleinkunnina 8,6.Það var kanadíski kvikmyndagerðarmaðurinn Dean DeBlois sem gerði Heima árið 2006. Það ár fylgdi DeBlois þeim Jónsa, Georg, Orra og Kjartani eftir á tónleikaferðalagi þeirra um Ísland, en með þeim í för var strengjasveitin Amiina.









