Hundahvarf verra en kynlífsmyndband

Paris Hilton hefur upplifað ýmislegt. stækka

Paris Hilton hefur upplifað ýmislegt. Reuters

Glanspían Paris Hilton segir að erfiðasta lífsreynsla sín hafi verið þegar hundurinn hennar hvarf. Þessi ummæli stúlkunnar hafa vakið töluverða athygli í ljósi þess að hún hefur lent í einu og öðru um ævina, en árið 2003 lak kynlífsmyndband með henni og fyrrverandi unnusta hennar, Rick Salomon, á netið. Þá eyddi hún 23 dögum í fangelsi árið 2007 eftir að hafa verið fundin sek um að keyra án þess að hafa til þess tilskilin réttindi. Hún segir þetta þó ekki hafa verið neitt miðað við það þegar chihuahua-hundurinn hennar, sem nefnist Tinkerbell, hvarf.

„Það var svo hræðilegt. Hún var týnd í heila viku og ég vissi ekki hvort hún kæmi aftur eða ekki. Þetta var eins og að missa barnið sitt. Hún var samt bara rétt hjá allan tímann, heima hjá gamalli konu. Konan horfði hins vegar ekkert á sjónvarpið þannig að hún vissi ekki að hundurinn minn var horfinn. En svo sá hún auglýsingu þannig að ég fékk Tinkerbell aftur,“ segir Hilton.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is