Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.

Peter Gabriel. mbl.is

Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem  Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989 og eru verðlaunin jafnan veitt annars vegar fyrir rokktónlist og hins vegar klassíska tónlist.

Peter Gabriel, sem er 59 ára, sló í gegn á áttunda áratug síðustu aldar með hljómsveitinni Genesis. Hann hætti síðan í hljómsveitinni og hóf sólóferil. 

José Antonio Abreu er sjötugur að aldri frá Venesúela. Hann er menntaður píanóleikari og tónskáld en fær verðlaunin fyrir  svonefnt El Sistema verkefni, sem Abreu hleypti af stokkunum 1975 og miðar að því að gera fátækum börnum kleift að afla sér tónlistarmenntunar.

Karl Gústaf Svíakonungur mun afhenda Polarverðlaunin í Stokkhólmi í sumar.

Heimasíða Polarverðlaunanna

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Heima er besta heimildarmynd heims á Imdb.com

Sigur Rós við Snæfellsskála.
12.5.2009 Heimildarmyndin Heima, sem fjallar um hljómsveitina Sigur Rós, er besta heimildarmynd allra tíma ef marka má kvikmyndavefinn Internet Movie Database, Imdb.com. Notendur vefjarins, sem er einn allra vinsælasti kvikmyndavefur heims, geta gefið hverri mynd einkunn frá einum upp í tíu, og í flokki heimildarmynda er Heima á toppnum með meðaleinkunnina 8,7. Meira »

finnur.is