Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 12.5.2009
| 5:30
| Uppfært
7:31
Reynir að sofa út í dag
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is
„Þetta leggst bara ljómandi vel í mig, enda er þetta allt að koma,“ segir Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem flytur framlag Íslands, lagið „Is It True?“ í fyrri undanúrslitum Evróvisjónsöngvakeppninnar í Moskvu í kvöld. Jóhanna stígur á svið um kl. 19.50 að íslenskum tíma, eða kl. 23.50 að staðartíma.
„Það er svolítið furðulegt, en maður er nú vanur svo mörgu úr þessum bransa,“ segir Jóhanna Guðrún um tímasetninguna. En ætlar hún þá að sofa út í dag til að verða sem best upplögð í kvöld? „Ég ætla að reyna það, en ég veit ekki hvernig það mun takast. En það væri frábært ef við myndum ná því.“
Nánar er rætt við Jóhönnu í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









